Hoppa yfir valmynd
Táknmál

Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Sölvhólsgötu 7
101 Reykjavík

SÍMI: 545 9800

Netfang: [email protected]

Afgreiðsla er opin virka daga frá kl. 08:30 - 16:00.

Menningar- og viðskiptaráðuneytið tók formlega til starfa 1. febrúar 2022 í samræmi við forsetaúrskurð nr. 6/2022 um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.

Hlutverk menningar- og viðskiptaráðuneytis er að skapa menningarstarfi, viðskiptalífi og ferðaþjónustu umhverfi sem stuðlar að velsæld og verðmætasköpun fyrir samfélagið. Helstu málefni sem ráðuneytið fer með eru menningarmál og málefni íslenskrar tungu, táknmál, neytenda- og samkeppnismál, ferðaþjónusta, fjölmiðlar og skapandi greinar, almenn viðskiptamál og ríkisaðstoð.

Menningar- og viðskiptaráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.

Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Samtal um aðgerðaáætlun í ferðamálum til 2030

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra býður til opinna umræðu- og kynningarfunda um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Fundirnir eru haldnir víðs vegar á landinu og má sjá dagskránna hér. Fyrstu drög að aðgerðaáætlun ferðamálastefnu 2030 voru unnin í víðtæku samráði stjórnvalda við fjölda hagaðila.

Hvati - Styrkveiting til verkefna á málefnasviðum ráðherra

Menningar- og viðskiptaráðuneytið veitir Hvata - styrki til verkefna á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðherra. Styrkjum skal úthlutað til ákveðinna verkefna á vegum félaga og samtaka til eins árs í senn. Verkefnin skulu ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga.

Hvað gerum við

Hlutverk menningar- og viðskiptaráðuneytis er að skapa menningarstarfi, viðskiptalífi og ferðaþjónustu umhverfi sem stuðlar að velsæld og verðmætasköpun fyrir samfélagið.

Nánar

Helstu verkefni menningar- og viðskiptaráðuneytisins

Lilja D. Alfreðsdóttir menningar- og viðskipta­ráðherra

Menningar- og viðskiptaráðherra

Lilja Alfreðsdóttir

Lilja Alfreðsdóttir er menningar- og viðskiptaráðherra frá 28. nóvember 2021. Hún gegndi embætti mennta- og menningarmálaráðherra 2017-2021. Hún hefur setið á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavíkurkjördæmi suður síðan 2016 en var þar áður aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu alþjóðasamskipta og markaðsmála í Seðlabanka Íslands, ráðgjafi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington DC frá 2010 til 2013 og verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu 2014-2015. Lilja Alfreðsdóttir var utanríkisráðherra 2016 til 2017 og mennta- og menningarmálaráðherra 2017-2021.

Nánar um menningar- og viðskiptaráðherra

Ræður og greinar menningar- og viðskiptaráðherra

Dagskrá menningar- og viðskiptaráðherra

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum