C.08. Sjálfbær samfélög – efling hringrásarhagkerfis
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Guðmundur B. Ingvarsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected]
Fréttir
03.02.23 Ráðuneyti verður aðili að samstarfsverkefninu Orkideu
02.02.23 Samstarfsverkefni um orkuskipti og orkutengda nýsköpun
01.02.23 Sóknarfæri í nýsköpun
13.05.22 Norðanátt fær 20 m.kr. fjárveitingu frá umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytinu
Verkefnið
Markmið: Að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda við meðhöndlun úrgangs, unnið að kolefnishlutleysi Íslands og dregið úr myndun úrgangs. Enn fremur að endurvinnsla og önnur endurnýting verði aukin, dregið úr urðun og urðun lífbrjótanlegs úrgangs hætt.
Stutt lýsing: Dregið verði úr myndun úrgangs, flokkun og endurvinnsla aukin og stuðlað að meiri samræmingu á landsvísu. Horft verði til þess að sveitarfélög nýti svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs sem stjórntæki og að þau samþætti viðeigandi stefnumörkun og áætlanir til að efla hringrásarhagkerfið, bæti auðlindanýtingu og dragi úr losun gróður-húsalofttegunda. Veittir verði styrkir til sveitarfélaga til þess að styrkja úrgangsforvarnir og bæta meðhöndlun úrgangs í sveitarfélögum, einkum byggðarlögum sem búa við veikan fjárhag, mjög dreifða byggð eða neikvæða byggðaþróun.
- Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Sveitarfélög og landshlutasamtök sveitarfélaga.
- Dæmi um samstarfsaðila: Umhverfisstofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök iðnaðarins, Fenúr og fyrirtæki í úrgangsgeiranum.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, Orkustefna, klasastefna, Saman gegn sóun – almenn stefna um úrgangsforvarnir 2016–2027, stefna um meðhöndlun úrgangs 2021–2032, Matarauðlindin Ísland – matvælastefna Íslands til ársins 2030.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 2, 9, 11, 12 og 13, einkum undirmarkmið 2.4, 9.4, 11.6, 12.3, 12.4, 12.5, 12.8, 13.2 og 13.3.
- Tillaga að fjármögnun: 85 millj. kr. úr byggðaáætlun.