Verkefni
Ráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneytiðKafli
Menntamál
Framvinda
Áfram er unnið að undirbúningi sérstakra aðgerða um fjölbreytileika í skólastarfi og virkni samhliða undirbúningi nýrra heildarlaga um skólaþjónustu og stutt við kynheilbrigði og ofbeldisforvarnir í skólum, þar á meðal með stuðningi við gerð viðbragðsáætlana í kynferðisbrotamálum. Rafræn námskeið Barna- og fjölskyldustofu um kynferðisofbeldi og kynferðislega hegðun barna og unglinga fyrir alla sem starfa með börnum eru nú öllum aðgengileg https://www.bofs.is/stodflokkar/fraedslutorg/ Ráðuneytið styrkti verkefni sem er ætlað að stuðla að öruggu skólaumhverfi fyrir hinsegin nemendur á landsbyggðinni. EKKÓ (einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi) leiðarvísir fyrir nemendur, starfsfólk og stjórnendur framhaldsskóla verður gefinn út fljótlega. Fræðslumyndband um EKKÓ mál fyrir framhaldsskólanemendur er langt komið og fer í notkun innan framhaldsskóla fljótlega. Haldinn var fræðslufundur um mikilvægi kynjafræðikennslu fyrir alla skólameistara framhaldsskóla. Þá er búið að gefa út nýtt námsefni um kynþroskaárin sem ætlað er börnum og ungmennum með auknar stuðningsþarfir sem þurfa aðlagað námsefni.
Staða verkefnis
Komið vel á vegViðvarandi verkefni